Spacestation - Dúkkulísurnar Erla og Gréta - Mike Stern og Gullnöglin
Manage episode 458103840 series 1315174
Nội dung được cung cấp bởi RÚV. Tất cả nội dung podcast bao gồm các tập, đồ họa và mô tả podcast đều được RÚV hoặc đối tác nền tảng podcast của họ tải lên và cung cấp trực tiếp. Nếu bạn cho rằng ai đó đang sử dụng tác phẩm có bản quyền của bạn mà không có sự cho phép của bạn, bạn có thể làm theo quy trình được nêu ở đây https://vi.player.fm/legal.
Í Rokklandi dagsins verður farið víða - það er klisja en það er satt. Við ætlum að hlusta á gítarrokk og barrokk-popp og ástarsöngva og jazz og allt mögulegt – og allt er þetta músík og allt er þetta góð músík. Ég hitti tvo af ungu mönnunum í rokkhljómsveitinni Spacestation um daginn. Spacestation er skemmtileg hljómsveit sem minnir soldið á Strokes og Velvet Underground og Oasis jafnvel? Spacestation er að spila á Iceland Airwaves og þeir eru með stóra drauma þessi ungu menn. Dúkkulísurnar frá Egilstöðum hafa verið starfandi í meira en 40 ár. Þær eru ekkert alltaf að en hljómsveitin er starfandi – allar stelpurnar vinkonur og eru meira að segja fleiri í dag en í upphafi. Tvær þeirra – Erla Ragnarsdottir söngkona og Gréta gítarleikari voru að senda frá sér plötu bara tvær – Lífið er ljóðið okkar. Ég hitti þær og spjallaði við þær á föstudaginn þegar þær héldu lítið útgáfuboð á nýjum litlum bar og veitingahúsi og hóteli við Ránargötu. Og svo er það gítarinn – Gítarveisla Bjössa Thor - 20 ára afmæl fór fram fimmtudagskvöldið í Bæjarbíó í Hafnarfirði. Þar var margt um manninn – smekkuppselt og tveir erlendir gestir; Robben Ford og Mike Stern sem spilaði með Blood Sweat and tears í upphafi ferils síns – spilaði svo með Jaco Pastorius og Miles Davis – og hann er handhafi Gullnaglarinnar í ár. Önnur gítarhetja – Þráinn Árni Baldvinsson úr Skálmöld spjallaði við Mike Stern fyrir Rokkland – hann veit hvernig á að spyrja gítarleikara spjörunum úr. Og þetta er ekki allt – það er meira!
…
continue reading
143 tập